Beint í efni
Faghópar

Fag­hóp­ur tóm­stunda- og fé­lags­mála­fræð­inga og ann­ars fag­fólks í tóm­stund­astarfi

Tómstundastarf gegnir mikilvægu menningar- og uppeldishlutverki í nútímasamfélagi. Fagfólk í tómstundastarfi í Visku geta skráð sig í faghóp tómstunda- og félagsmálafræðinga og annars fagfólks í tómstundastarfi.

Faghópur tómstunda- og félagsmálafræðinga og annars fagfólks í tómstundastarfi innan Visku er vettvangur þeirra sem vilja starfa að kjaramálum fagfólks í tómstundastarfi. Megintilgangur hópsins er að standa vörð um kjör tómstunda- og félagsmálafræðinga og annars fagfólks í tómstundastarfi og endurmenntun þeirra. 

Talsmaður fagfólks í tómstundastarfi í fulltrúaráði Visku er Gísli Rúnar Gylfason.

Hver erum við?

Tómstundastarf gegnir mikilvægu menningar- og uppeldishlutverki í nútímasamfélagi. Í tómstunda- og félagsmálafræði er fjallað um gildi, þýðingu og hlutverk tómstunda- og félagsmálastarfs fyrir fólk á öllum aldri. 

Sérfræðiþekking tómstunda- og félagsmálafræðinga felst m.a. í að leiða saman hópa, stuðla að félagslegum þroska og hæfni með fjölbreyttum viðfangsefnum.