Fræðsla
Skil á skattframtali fyrir launafólk og aðila sem eru með verktakagreiðslur
Viska auglýsir fjarnámskeið fyrir félagsfólk sitt vegna skila á skattframtali og einstaklingsráðgjöf við gerð skattframtala.
Þetta námskeið er ætlað launafólki og þeim sem eru með verktakagreiðslur og þurfa að fylla út sérstök rekstrareyðublöð. Farið verður yfir helstu mistök við gerð skattframtala eins og t.d. að gleyma að fylla út aukablöð. Þá er einnig farið yfir útreikning og niðurstöðu álagningarseðils og reiknivélar á vef RSK eru skoðaðar.