Beint í efni
Þjónusta Visku

Fyr­ir fjöl­miðla

Viska varð til við sameiningu þriggja stéttarfélaga árið 2023, Félags íslenskra félagsvísindamanna (FÍF), Fræðagarðs og Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga (SBU). Fleiri séttarfélög bættust svo við í hópinn.

Félagsfólk Visku er tæplega fimm þúsund talsins. Félagsfólk starfar út um allt land, á almenna og opinbera markaðnum. Félagsfólk geta þau orðið sem lokið hafa eða eru í háskólanámi, eða sambærilegu námi, og þau sem gegna sérfræðistörfum sem krefjast þekkingar sem alla jafnan er á háskólastigi.

Viska er stærsta aðildarfélag BHM og eitt stærsta stéttarfélag sérfræðinga á Íslandi.

Tengiliður við fjölmiðla

Gauti Skúlason (gauti@viska.is) sér um samskipti og markaðsmál fyrir Visku, fjölmiðlar geta haft samband við hann.

Hönnunarstaðall og ljósmyndir

Til þess að fá aðgang að hönnunarstaðli eða ljósmyndir vinsamlegast sendu póst á gauti@viska.is

Formaður Visku

Formaður Visku er Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir sem var kosin í rafrænum kosningum félagsfólks Fræðagarðs árið 2022. Hún var fyrst kosin í stjórn Fræðagarðs árið 2019 og gegndi embætti gjaldkera félagsins á árunum 2020 til 2022. Brynhildur leiddi sameiningarviðræður Fræðagarðs við FÍF og SBU árið 2023.

Brynhildur hefur langa reynslu af félagsstörfum. Hún starfaði sem framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands frá 2011 þar til hún var kosin til formennsku í Fræðagarði. Hún situr nú í stjórn European Women’s Lobby, stærstu regnhlífarsamtaka femínísku hreyfingarinnar í Evrópu, og gegnir enn fremur embætti ritara hjá Fjöruverðlaununum, bókmenntaverðlaunum kvenna og kvára á Íslandi.

Brynhildur er með netfangið brynhildur@viska.is

Framkvæmdastjóri Visku

Georg Brynjarsson er framkvæmdastjóri Visku. Hann er hagfræðingur að mennt, hefur unnið fjölbreytt störf á sviði vinnumarkaðsmála og starfaði áður sem hagfræðingur BHM. 

Georg er með netfangið georg@viska.is

Um Visku

Saga Visku hefst við sameiningu þriggja stéttarfélaga árið 2023, en upphaf félagsstarfsins má rekja til grósku verkalýðshreyfingarinnar á eftirstríðsárunum.

Í Visku sameinast fólk með fjölbreytta og ólíka menntun að baki. Viska vex hratt enda er það stéttarfélag sem endurspeglar framtíðina, samfélag þar sem fjölbreytileiki, þverfagleg vinnubrögð og nýsköpun á vinnumarkaði skipta máli.