Beint í efni
Í brennidepli

Ör­ugg tján­ing í raf­heim­um og raun­heim­um

Þriðjudaginn 9. apríl kl. 13:00-16:00 í sal Reykjavíkurakademíunnar Þórunnartúni 2

Kona og maður á bryggju að tala saman

Höfundur

Gauti Skúlason

Gauti Skúlason

samskipti og markaðsmál

Fyrirlesari er Sirrý Arnardóttir stjórnendaþjálfari, fjölmiðlakona, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst.

Hagnýtur fyrirlestur um örugga tjáningu á fundum, ræðupúlti, málstofum, hvort sem er í raunheimum eða rafrænt. Fyrirlesturinn er félagsfólki BHM að kostnaðarlausu. Hann verður ekki haldinn rafrænt né verður gerð upptaka af honum. 

Fjallað verður um:

  • Að kynna sig/fyrirtæki/málefni á árangursríkan hátt
  • Að virkja hópinn
  • Að takast á við neikvæða strauma
  • Að nýta sér sviðsskrekk
  • Skotheld aðferð við að undirbúa ,,óundirbúna ræðu”.
  • Hvað þarf helst að hafa í huga í rafheimum? Hvað virkar vel/illa?

Skráning

Takmarkað pláss er á námskeiðið, skráning fer fram á Mínum síðum BHM.