Beint í efni
Í brennidepli

Viska og LÍS í sam­st­arf

Viska og Landssamtök íslenskra stúdenta hafa undirritað samstarfssamning

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku og Alexandra Ýr van Erven forseti LÍS undirrita samstarfssamning

Höfundur

Gauti Skúlason

Gauti Skúlason

samskipti og markaðsmál

Viska lætur málefni háskólasamfélagsins sig varða og leggur áherslu á fræðslu og þjónustu fyrir háskólanema. Félagið vill eiga virkt samtal við hagsmunasamtök íslenskra háskóla á landsvísu og taka þátt í hagsmunabaráttu háskólanema.

Í janúar undirrituðu Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku og Alexandra Ýr van Erven forseti LÍS samstarfssamning sem hefur það að markmiði að efla þekkingu háskólanema á kjara- og réttindamálum á vinnumarkaði og vinna saman að stefnumótun um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál.

Í mínum huga er þessi samningur fyrsta skrefið í farsælu framtíðarsamstarfi Visku og LÍS. Hagsmunir háskólanema eru hagsmunir okkar í Visku, félagsfólk okkar er langflest háskólamenntað og mörg hver stunda enn nám. Viska styður þétt við réttindabaráttu háskólanema og ég hlakka til samstarfsins með LÍS sagði Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku.

Ungt fólk út að labba

Á næstu mánuðum mun starfsfólk Visku og fulltrúar LÍS vinna að nánari útfærslu á samstarfinu með það að markmiði að fræðsla og námskeið verði komin í fullan gang í haust. Í framhaldinu verður skoðað hvernig hægt er fjölga leiðum til að styrkja stöðu háskólanema á vinnumarkaði og vinna að undirbúningi fyrir lífið á vinnumarkaði. Kjara- og réttindamál ungs fólks og fyrstu skref á nýjum vinnustað verða meginatriðin í þeirri vinnu.

Það er mikið fagnaðarefni að Viska skuli vilja styðja við bakið á LÍS og þar með efla hagsmunabaráttu stúdenta á landsvísu. Fyrir liggur samningur við BHM og með þessum nýja samningi bætist enn frekari stuðningur við LÍS og samvinna stúdenta- og verkalýðshreyfingarinnar þéttist sagði Alexandra Ýr van Erven forseti LÍS.